Fundarsalir
Þrír vel búnir fundarsalir í boði. Kríunes bíður upp á allar veitingar tengdar fundahöldum.
Fundarsalur 1 Notalegur salur fyrir smærri fundi að hámarki 16 manns. Aðgangur er að setustofu með ótrúlegt útsýni. Þráðlaus nettenging, 42” skjár eða skjávarpi, flettitafla, standandi te, kaffi og vatn fylgja salnum. Önnur rými bjóðast ef þarf að skipta hópnum upp.
Fundarsalur 2 Bjartur salur með fallegu útsýni yfir Elliðavatn og Heiðmörk. Heppileg aðstaða fyrir námskeiðahald og fundi. Fjöldi frá ca. 16-40 manns miðað við hefðbundna fundaruppröðun. (U-uppröðun eða sem kennslustofa). Hægt er að rúma töluvert fleiri ef um veislur eða bíó-uppröðun er að ræða eða ca. 70 manns. Þráðlaus nettenging, skjávarpi, flettitöflur, standandi te,kaffi og vatn fylgja salnum.
Fundarsalur 3 Nýr og fallegur salur á neðri hæð ásamt rúmgóðu svæði þar sem er kaffitería og setustofa. Stór útiverönd með fallegu útsýni yfir Elliðavatn er beint út af kaffeteríunni. Tilvalið t.d. fyrir grillveislu eftir strangan fundardag. Salurinn rúmar allt að 60 manns (fer eftir uppröðun), en hægt að rúma fleiri ef um er að ræða t.d. veislu eða ráðstefnu (bíóuppröðun) Kríunes bíður upp á morgunverðarhlaðborð, ávaxtakörfur, morgunhressingu, hádegisverð, síðdegiskaffi, putta/pinnamat og kvöldverð.
|